Elkem Ísland ehf., áður Íslenska járnblendifélagið, er hluti af Elkem AS. Fyrirtækið selur kísiljárn til stálvera, stáliðnaðar og í járnsteypur. Elkem á Íslandi hefur á undanförnum árum aukið vöruframboð sitt á járnblendi og býður nú sérhæfðari vöru til viðskiptavina.

Okkur hjá Elkem er annt um umhverfið og að takmarka neikvæð áhrif allrar framleiðslu. Því leitumst við eftir því að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á umhverfið.

Við leggjum mikla áherslu á að Elkem sé þekkt fyrir gott starfsfólk sem býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á starfsemi fyrirtækisins og þykir eftirsóknarvert að starfa hjá því.

20. ágúst 2010

Rannsókn á tildrögum vinnuslyss lokið

Rannsókn sérstakrar rannsóknarnefndar móðurfélags Elkem Ísland á tildrögum vinnuslyss sem varð hjá járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga þann 29. júní sl. er lokið. Fyrr í þessari viku hófst vinna við að endurræsa ofninn sem eldurinn slapp úr. Yfirumsjón og meginþungi rannsóknarinnar hefur hvílt á sérfræðingum frá móðurfélaginu Elkem AS í samstarfi við starfsmenn verksmiðjunnar á Íslandi. Vinnueftirlitið hefur frá upphafi fylgst með framgangi rannsóknarinnar og var ákvörðun um að gangsetja ofninn á nýjan leik tekin í samráði við stofnunina. Niðurstöður í sjálfstæðri rannsókn Vinnueftirlitsins á tilurð slyssins liggja einnig fyrir.

1. júlí 2010

Starfsmaður látinn

Starfsmaðurinn sem slasaðist alvarlega við vinnu sína í verksmiðjunni þann 29. júní sl. er látinn. Hann hét Óskar Stefánsson og var þrítugur að aldri, fæddur 3. ágúst árið 1979. Óskar lætur eftir sig dóttur sem fædd er árið 1997. Óskar hóf störf hjá Elkem í mars árið 2008 og hafði því starfað hjá félaginu í rúmlega tvö ár. Hann sinnti verkefnum sínum af alúð og kostgæfni og ávann sér á þessum skamma tíma bæði traust og vináttu samstarfsmanna sinna. Óskars er sárt saknað af samstarfsmönnum sínum og er aðstandendum hans vottuð djúp samúð vegna þessa hræðilega slyss. 

UM ELKEM

Elkem á Íslandi framleiðir hágæða málmblendi og leggur mikla áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina sinna.

ELKEM ÍSLAND 30 ÁRA

Verksmiðja Elkem Ísland (áður Íslenska járnblendifélagið) var gangsett árið 1979. Það eru því rúm 30 ár frá því framleiðsla hófst í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga.

UMHVERFIÐ

Við leitumst eftir að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á heilsu, öryggi og umhverfið.

VISSIRÐU ÞETTA?

FSM er ensk skammstöfun fyrir frumefnin járn (e. ferro), kísil (e. silicon) og magnesíum.