Sérvara

 

Sérafurðir kísiljárns

Sérafurðir kísiljárns eru afurðir sem innihalda lægra hlutfall af aukaefnum en hefðbundið kísiljárn. Aukaefnin eru meðal annars ál (Al), kolefni (C) og títan (Ti). Þessar afurðir eru unnar með sérstakri meðhöndlun á fjótandi kísiljárni og að auki eru notuð sérstök hráefni á bræðsluofna fyrir sumar afurðanna. Sérvörur kísiljárns eru meðal annars notaðar við framleiðslu á gæðastáli fyrir spennubreyta/mótora, kúlulegur, stálþræði í bíldekk og í ryðfrítt stál.
 

FSM / MgFeSi

FSM (einnig MgFeSi) er kísiljárn sem búið er að blanda í magnesíum, kalsíum, áli og jarðalkalímálmum. FSM er skammstöfun sem stendur fyrir ensku heitin á þremur aðal frumefnunum í afurðinni, það eru járn (Fe: ferro), kísill (Si: silicon) og magnesíum (Mg: magnesium). FSM er svokallað kímefni („nodulariser“ á ensku) en það hefur áhrif á útfellingu kolefnis í steypujárni og umbreytir grájárni í seigjárn. Elkem framleiðir FSM málmblendi með 120 mismunandi efnasamsetningum og í fjölmörgum stærðarflokkum. FSM er notað í steypujárn, meðal annars við framleiðslu ýmissa íhluta í bíla, til dæmis vélarblokkir, hjólanöf, mismunadrif og sveifarása.
 

UM ELKEM

Elkem á Íslandi framleiðir hágæða málmblendi og leggur mikla áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina sinna.

ELKEM ÍSLAND 30 ÁRA

Verksmiðja Elkem Ísland (áður Íslenska járnblendifélagið) var gangsett árið 1979. Það eru því rúm 30 ár frá því framleiðsla hófst í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga.

UMHVERFIÐ

Við leitumst eftir að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á heilsu, öryggi og umhverfið.

VISSIRÐU ÞETTA?

FSM er ensk skammstöfun fyrir frumefnin járn (e. ferro), kísil (e. silicon) og magnesíum.