
Staðalvara
Hefðbundið kísiljárn hefur verið uppistaðan af framleiðslu Elkem í gegnum árin en undanfarin ár hefur framleiðsla á sérvörum verið aukin til mikilla muna. Kísilryk er aukaafurð sem verður til við framleiðslu á kísiljárni.
Hefðbundið kísiljárn
Staðal 75% kísiljárn (FeSi75) er málmblendi sem inniheldur u.þ.b. 75% kísil (Si), 23% járn (Fe), 1,5% ál (Al) auk snefilefna. Hefðbundið kísiljárn er notað til að hreinsa súrefni úr stálbráð áður en hún er steypt út. Að meðaltali eru notuð 3 til 3,5 kg af kísiljárni í hvert tonn af framleiddu stáli.
Kísilryk
Kísilryk (Microsilica®) er örfínt myndlaust kísiloxíð duft (SiO2) sem er safnað með síun úr útblæstri frá bræðsluofnunum og telst því aukaafurð. Kísilryk er einkum notað í sements- og steypuframleiðslu. Kísilrykið eykur styrk steypunnar. Það kemur einnig í veg fyrir alkalívirkni. Elkem Materials sér um sölu og dreifingu á kísilryki, en meginhluti framleiðslunnar á Grundartanga er seldur erlendis.