31. ágúst 2009 16:06

Nýtt starfsleyfi

Umhverfisstofnun hefur gefið út nýtt starfsleyfi fyrir Elkem Ísland ehf.  Samkvæmt því er félaginu heimilt að framleiða allt að 190.000 tonnum  af kísil og kísiljárni og  45.000 tonn af kísilryki. Það gildir til 1. september 2025.  

Starfsleyfið tekur  til eftirvinnslu á málmi og framleiðslu á sólarkísil. Með eftirvinnslu er átt við framleiðslu á kímefnum með íblöndun magnesíum og fleiri málma, hreinsun á kísiljárni og hreinsun á kísil til að mæta ströngustu kröfum um hreinleika málmsins.

Starfsleyfið í heild er á vef Umhverfisstofnunar.

UM ELKEM

Elkem á Íslandi framleiðir hágæða málmblendi og leggur mikla áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina sinna.

ELKEM ÍSLAND 30 ÁRA

Verksmiðja Elkem Ísland (áður Íslenska járnblendifélagið) var gangsett árið 1979. Það eru því rúm 30 ár frá því framleiðsla hófst í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga.

UMHVERFIÐ

Við leitumst eftir að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á heilsu, öryggi og umhverfið.

VISSIRÐU ÞETTA?

FSM er ensk skammstöfun fyrir frumefnin járn (e. ferro), kísil (e. silicon) og magnesíum.