25. nóvember 2009 09:02
Aukin sýnileiki vatnsgufu og reyks vegna endurnýjunar fóðringa í ofni
Gera má ráð fyrir að næstu dagana verði sýnileg vatnsgufa og reykur frá verksmiðjunni meiri en venja er til. Ástæðan er reglubundið viðhald eins af þremur bræðsluofnum verksmiðjunnar en ofnarnir eru endurnýjaðir á u.þ.b. 15 ára fresti. Meðal annars eru settar í þá nýjar fóðringar úr eldföstum steinum, kolefni og bindiefnum. Fyrstu vikuna er ofninn látinn ganga á litlu álagi til að hita, þurrka og baka fóðringuna áður en framleiðsla hefst á nýjan leik. Á þessum tíma getur orðið nokkur sjónmengun, sérstaklega ef veður er stillt, en engar vísbendingar eru um að reykur af þessum völdum sé skaðlegur umhverfi verksmiðjunnar.
Reyklosun verksmiðjunnar er stýrt í samræmi við strangar reglur Evrópusambandsins og leggur móðurfélag verksmiðjunnar á Íslandi, Elkem AS, mikið af mörkum til vísinda- og þróunarstarfs sem að baki þeim reglum búa. Grannt er fylgst með magni efna sem berast frá framleiðslunni í vatn, andrúmsloft og jörð og er losun frá verksmiðjunni á Grundartanga langt innan viðmiðunarmarka. Endurnýjun ofna, eins og ýmsir aðrir þættir starfseminnar, fara fram að viðhöfðu samráði við Umhverfisstofnun.