
Innkaup
Elkem Ísland leggur mikla áherslu á gott og faglegt samband við birgja. Við viljum starfa með birgjum sem búa yfir ríkum faglegum metnaði og eru samfélagslega ábyrgir.
Stefna okkar er að vinna náið með birgjum okkar og þróa farsæl og skilvirk langtimasambönd þar sem hagsmunir beggja fara saman.
Til þess að koma til greina sem birgjar fyrir Elkem Ísland verða birgjar að uppfylla ákveðin skilyrði:
• Skýr sýn á öryggis-, heilsu- og umhverfismál
• Traustur fjárhagur
• Öflug gæðastjórnunarkerfi
• Metnaður til þess að vera leiðandi á sínu sviði