Elkem Ísland ehf., áður Íslenska járnblendifélagið, er hluti af Elkem AS. Fyrirtækið selur kísiljárn til stálvera, stáliðnaðar og í járnsteypur. Elkem á Íslandi hefur á undanförnum árum aukið vöruframboð sitt á járnblendi og býður nú sérhæfðari vöru til viðskiptavina.

Okkur hjá Elkem er annt um umhverfið og að takmarka neikvæð áhrif allrar framleiðslu. Því leitumst við eftir því að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á umhverfið.

Við leggjum mikla áherslu á að Elkem sé þekkt fyrir gott starfsfólk sem býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á starfsemi fyrirtækisins og þykir eftirsóknarvert að starfa hjá því.

15. maí 2012

Áætlun um umhverfisvöktun 2012 - 2021

Umhverfisstofnun samþykkti nýlega áætlun um umhverfisvöktun á Grundartanga fyrir tímabilið 2012 - 2021. Vöktunin er umfangsmikil og fer fram í grennd við iðnaðarsvæðið á Grundartanga. Gerðar eru reglubundnar mælingar á helstu umhverfisþáttum.

20. apríl 2012

Ísland og Bluestar undirrita viljayfirlýsingu

Í tengslum við heimsókn forsætisráðherra Kína, Wen Jiabo, til Íslands í dag föstudag undirrituðu íslensk yfirvöld og eigandi Elkem, China National Bluestar, sameiginlega viljayfirlýsingu um byggingu á tveimur nýjum verksmiðjum á Íslandi.

UM ELKEM

Elkem á Íslandi framleiðir hágæða málmblendi og leggur mikla áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina sinna.

ELKEM ÍSLAND

Verksmiðja Elkem Ísland (áður Íslenska járnblendifélagið) var gangsett árið 1979. Það eru því meira en 32 ár frá því framleiðsla hófst í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga.

UMHVERFIÐ

Við leitumst eftir að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á heilsu, öryggi og umhverfið.

VISSIRÐU ÞETTA?

Kísiljárn heitir ferrosilicon á ensku, skammstafað FeSi. Það er ensk skammstöfun fyrir frumefnin járn (e. ferro) og kísil (e. silicon).