Okkur hjá Elkem er annt um samfélagið. Því höfum við sett okkur reglur sem við vinnum eftir í öllum okkar störfum og miða að því að takmarka neikvæð áhrif vinnu okkar á umhverfið og gera vinnustaðinn öruggari.
Elkem á Íslandi framleiðir hágæða málmblendi og leggur mikla áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina sinna.
Verksmiðja Elkem Ísland (áður Íslenska járnblendifélagið) var gangsett árið 1979. Það eru því rúm 30 ár frá því framleiðsla hófst í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga.
Við leitumst eftir að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á heilsu, öryggi og umhverfið.
FSM er ensk skammstöfun fyrir frumefnin járn (e. ferro), kísil (e. silicon) og magnesíum.