9. september 2010 06:35

Truflanir í raforkukerfi leiddu til reyklosunar

Í dag 9. september kl. 11:36 varð reyklosun frá ofni 3. Skýrist það af spennusveiflum í raforkuflutningi til verksmiðjunnar sem orsakaði útslátt á ofni 2 og ofni 3. Þessi skyndilegi útsláttur olli tímabundinni bilun í reykhreinsivirki 3 og opnuðust því skorsteinslokur ofan við ofn 3 sjálfvirkt. Vinna við lagfæringu hófst strax og lauk kl. 12.24. Tími neyðarreyklosunar náði því yfir 48 mínútur er rétt er að geta þess að ofninn var ekki í rekstri yfir hluta þess tíma vegna útsláttar.

meira...
UM ELKEM

Elkem á Íslandi framleiðir hágæða málmblendi og leggur mikla áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina sinna.

ELKEM ÍSLAND 30 ÁRA

Verksmiðja Elkem Ísland (áður Íslenska járnblendifélagið) var gangsett árið 1979. Það eru því rúm 30 ár frá því framleiðsla hófst í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga.

UMHVERFIÐ

Við leitumst eftir að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á heilsu, öryggi og umhverfið.

VISSIRÐU ÞETTA?

FSM er ensk skammstöfun fyrir frumefnin járn (e. ferro), kísil (e. silicon) og magnesíum.