
Svona vinnum við
Við hjá Elkem vinnum eftir ákveðnum reglum í öllum okkar störfum. Við förum reglulega yfir verkferla okkar og leitum leiða til að gera vinnustaðinn öruggari og takmarka neikvæð áhrif vinnu okkar á umhverfið. Þetta gerum við með því að:
-Vinna í faglegum hópum
Við nýtum þekkingu okkar og sköpunarkraft til þess að bæta verkferla hjá fyrirtækinu og finna nýjar lausnir. Ákvarðanir eru teknar af faglega samsettum hópum sem hafa mikla þekkingu á viðfangsefninu.
-Framleiða eftir þörf viðskiptavina
Með þessu eigum við að allt sem við framleiðum stjórnast af óskum viðskiptavina. Við leggjum mikla áherslu á gott samband við viðskiptavini og birgja. Hvaða óskir hefur viðskiptavinurinn? Hvernig er óskum viðskiptavinarins komið til birgja og hvaða verðmæti skapast fyrir Elkem? Með því að gera okkur grein fyrir því hvar verðmætin skapast, getum við aukið skilvirkni framleiðslunnar.
-Minnka úrgang
Með því að auka skilvirkni framleiðslunnar minnkum við einnig úrgang frá henni. Þannig forðumst við oframleiðslu, of miklar birgðir eða ónauðsynlega flutninga á vöru.
-Ná stöðuleika í framleiðsluferlinu
Með framleiðsluferlinu er átt við fólkið, tækin, efnin og aðferðirnar sem koma við sögu við framleiðslu á ákveðnum vörum. Allir hlutar ferlisins verða að vera áreiðanlegir svo hægt sé að koma í veg fyrir óvænt skakkaföll fyrir starfsfólk, viðskiptavini og umhverfið. Við leitumst eftir að skilgreina þá ferla sem óljósir eru og leita leiða til að gera þá stöðugri og skilvirkari.