Elkem og umhverfið

Elkem leggur metnað sinn í að starfsemi fyrirtækisins sé í sem mestri sátt við umhverfið og sitt nánasta samfélag. Í umhverfisstefnu Elkem Ísland segir: „Dregið skal markvisst úr áhrifum rekstrar á ytra umhverfi og framfylgja ákvæðum starfsleyfis”. Áhrif reksturs Elkem Ísland á sitt nánasta umhverfi er meðal annars fylgt eftir með umfangsmikilli umhverfisvöktun.

Framleiðsla á kísiljárni fer fram í svokölluðum ljósbogaofnum. Hráefnin eru annars vegar málmgrýti, þ.e. kvars og járngrýti, og hins vegar kolefni, s.s.kol, koks og timburkurl. Í ofnunum hvarfast hráefnin við háan hita og mynda fljótandi málm og koldíoxíð sem fer út með afsogi. Fljótandi kísiljárni er tappað úr ofnunum í deiglur og síðan ýmist steypt beint út eða unnið frekar með málmhreinsun eða íblöndun fyrir útsteypingu.

Hráefnin eru flest öll innflutt. Undantekning frá þessu er timburkurl sem Sorpa framleiðir úr úrgangstimbri, samtals um 18.000 tonn á ári. Þetta kurl kemur í stað innfluttra kola að hluta til. Framleiðsla kurlins byggir á þróunarsamstarfi milli Elkem á Íslandi og Sorpu, en framleiðsla þess er ein umfangsmesta endurvinnsla á Íslandi.

Allt afsog frá ofnum fer um reykhreinsivirki þar sem kísilryk er síað frá. Vatn er notað við kælingu málmsins en það gufar beint upp og er blásið burt.

Nýverið hóf Elkem umfangsmikið verkefni sem miðar af því að helminga allan úrgang sem fer til urðunar. Fyrirtækið hyggst ná því markmiði með aukinni endurnýtingu, endurvinnslu og með því að huga sérstaklega að lágmörkun umbúða við innkaup og rekstur.

Elkem vinnur einnig að því að endurbæta allt utanumhald á efnum og geymslu þeirra. Verkefnið er umfangsmikið og liður í því að undurbúa fyrirtækið undir vottun umhverfissstjórnarkerfisins 14001 á næstu árum.

UM ELKEM

Elkem á Íslandi framleiðir hágæða málmblendi og leggur mikla áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina sinna.

ELKEM ÍSLAND 30 ÁRA

Verksmiðja Elkem Ísland (áður Íslenska járnblendifélagið) var gangsett árið 1979. Það eru því rúm 30 ár frá því framleiðsla hófst í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga.

UMHVERFIÐ

Við leitumst eftir að innleiða vinnuferla sem lágmarka áhrif á heilsu, öryggi og umhverfið.

VISSIRÐU ÞETTA?

FSM er ensk skammstöfun fyrir frumefnin járn (e. ferro), kísil (e. silicon) og magnesíum.